Samþykktir
Opinberar samþykktir Félags Írana á Íslandi
6. apríl 2026
1. gr. Nafn félagsins
Félagið heitir: Félag Írana á Íslandi.
2. gr. Lögheimili
Lögheimili félagsins er í Reykjavík.
3. gr. Tilgangur
Félagið er óháð félagasamtök sem starfar á grunni lífsskoðana félagsmanna. Félagið er ekki með neina atvinnustarfsemi. Markmið félagsins er að styðja við borgaraleg, menningarleg og félagsleg réttindi Írana á Íslandi og vinnur félagið að markmiðum sínum skipulega og eftir bestu getu.
4. gr. Markmið
1. Málfasleg aðstoð: Að vinna að viðurkenningu persnesku í opinberri þjónustu
2. Vinnuréttur og skattamál: Ráðgjöf um íslenskan vinnumarkað
3. Dvalarleyfi og mannúðarmál: Eftirfylgni dvalarleyfismála
4. Velferð fjölskyldna: Stuðningur við félagslega aðlögun
5. Jafnrétti kynjanna: Valdefling íranskra kvenna
6. Menningar og þjóðhátíðir: Hátíðahöld og menningarviðburðir
7. Borgaraleg þátttaka: Borgaraleg og stjórnmálaleg þátttaka
8. Lagaleg aðstoð: Samstarf við lögmenn
9. Gagnsæi: Gagnsæi í starfsemi og útgjöldum
5. gr. Félagsaðild
Aðild er heimil öllum Írönum sem hafa dvalarleyfi eða ríkisborgararétt á Íslandi, auk Írana sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi og samþykkja markmið félagsins. Stjórn félagsins staðfestir aðildarumsóknir.
6. gr. Starfstímabil
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
7. gr. Aðalfundur
Aðalfundur er æðsta ákvörðunarvald félagsins. Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað og meirihluti félagsmanna mætir (50%+1).
8. gr. Stjórn
Stjórn félagsins skal skipuð 3-5 félagsmönnum, formanni, ritara og gjaldkera, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 8 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum.
9. gr. Félagsgjald
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt mánaðarlega.
10. gr. Slit félagsins
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta atkvæða fundarmanna. Við slit félagsins skulu eignir félagsins renna til líknar- og góðgerðarmála.